sunnudagur, 26. janúar 2014

Í hvað er ég búin að koma mér..

Já..

Ég er að komast að því að ég geri allt nema læra þessa daganna!

Hæ og velkomin/n á bloggið mitt.

Ástæðan fyrir því að mér finnst ég í raun "knúin" til að stofna svona síðu er að ég er sjálf algjör bloggfíkill. Mín vef rútína inniheldur alltof margar bloggsíður. En það er aðallega bara afskiptasemi og forvitni við það að hnýsast í annarra manna buisness. OG matarblogg, ó god matarblogg... Ég skoða matarblogg aðallega með það þá draumóra í huga að ég geti mögulega einn daginn framreitt eitthvað sem ég er virkilega stolt af. Það sem ég hef slefað yfir matarbloggum, ó god - ó god - ó god.
EN eitt er það sem stingur mig alltaf í augu við öll þessi blogg (nema eitt, minnist á það síðar). Það er að ALLT virðist svo óþolandi fullkomið í heimi bloggarans. Ég er hingað komin til að sýna ykkur að öfund er óþarfi. Það eru ekki öll önnur heimili fyrir utan ykkar alltaf skínandi hrein, blómvöndur kostar handlegg á Íslandi og því er ekki hægt að skreyta heimilið með ferskum blómum OG nei það er ekki alltaf hægt að kaupa fullt af nýju dóti.

Bitur?
Ó hell já.

En ekki óttast, ég hef sjúkan húmor fyrir sjálfri mér og hef yfir mörgu að gleðjast!

Hér mun ég deila staðreyndum, skemmtisögum og myndum af mér og mínum. Ég hugsa að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi, hef áhuga á öllu mögulegu.. eiginlega of mörgu!

Þangað til næst,
Lovísa Oktovía

Engin ummæli:

Skrifa ummæli